Most commented posts
- Sundknattleikur.is kominn með nýja heimasíðu — 1 comment
- IGLA 2012 — 1 comment
Sep 08 2013
Æfingatímar eru 20:15 – 22:00 mánudaga og miðvikudaga í Laugardalslaug. Öllum velkomið að mæta og kynnast sundknattleik. Áhugasamir geta sent póst á [email protected] eða hring í Tómas s. 8538575.
Aug 15 2013
Nú styttist í að 2013-2014 tímabilið hefjist í sundknattleiknum og félögin tvö hefja brátt æfingar á ný. Sundfélag Hafnarfjarðar verður með kynningarfund næstkomandi miðvikudag í fundarsal félagsins í Ásvallalaug þar sem öllum er frjálst að mæta og kynna sér félagið og íþróttina. [important]Kynningarfundur Sundfélags Hafnarfjarðar – 21. ágúst 2013 Ásvallalaug – Fundarsalur – kl 20:00 …
May 29 2013
Næstkomandi mánudag hefst úrslitarimma liðanna um Íslandsmeistaratitilinn þetta árið. Seinustu 2 árin hafa SH-ingar varið titilinn frækilega en nú er staðan svo að aldrei áður hafa liðin verið eins jöfn að vígi og leikir ársins sýndu okkur. Það er því engan veginn hægt að segja með vissu hvar bikarinn endar og spennandi leikir framundan.
May 23 2013
Nú í kvöld lauk 9. og seinasta leik deildarinnar á þessu tímabili. Ægir heimsótti hafnfirðingana í SH í hörkuspennandi leik í Ásvallalaug. Innherjamaður hjá SH gaf það upp við fréttamann Sundknattleikur.is að leikmenn liðsins hefðu verið teknir í naflaskoðun eftir tvo tapleiki í röð. Litlu munaði að Ægi vantaði leikmann upp á til að hafa …
May 06 2013
SH mætti aftur í heimsókn í Laugardalslaugina mánudagskvöldið 6. Maí staðráðnir í að landa sigri. Liðin voru nokkuð jafnt skipuð að þessu sinni og byrjaði leikurinn af krafi en SH-ingar voru fyrstir til að skora. Það breyttist þó fljótt og settu leikmenn Ægis boltann í nokkrum sinnum í netið en fyrir hálfleik náði lið SH …